top of page

Tækifæri á fjölmennasta neytendamarkaði í heimi - Kína

 

Við höfum starfað við innkaup á fjölmennustu mörkuðum í heimi í langan tíma. Þessi lönd hafa byggt upp efnahag sinn og síðustu ár hefur kaupmáttur aukist verulega. T.d. er Kínverski markaðurinn sá stærsti í heimi og mest vaxandi. Því sjáum við óendanleg  markaðstækifæri á þeim markaði.

 

Til að komast á Kínverska markaðinn verða fyrirtæki að leggja í mikla vinnu. Markaðssókn er langtímaverkefni, kostar mikla vinnu og fjármagn. Undirbúningur þarf að vera góður og þekking á markaðsaðstæðum að vera fyrir hendi. Kínverjar leggja mikið upp úr gæðum, og að fyrirtækið á bak við vöruna sé traust.  

 

Þó tækifærin séu mörg, er margt að varast, og því ráðleggjum við öllum sem ætla á Kínverska markaðinn að leita sér aðstoðar sérhæfðra aðila.

 

 

Tilboð okkar

 

Við bjóðum viðskiptavininum að aðstoða þá við að selja vörur sínar á Kínverska markaðinum. Í stað þess að gera markaðsrannsókn bjóðum við viðskiptavininum að framkvæma raunveruleikaskoðun. Það gerum við með því að velja hóp af Kínverskum sérfræðingum sem skoða vöruna og gefa álit sitt á möguleikum hennar. Við setjum vöruna í show-room okkar í Shanghai og þar kynnum við vöruna fyrir þessum aðilum. Þessi skoðun getur tekið allt að 3 mánuði. Þegar henni er lokið sendum við skýrslu til viðskiptavinarins með tillögum sérfræðinganna.

 

Ef tillögur þeirra eru jákvæðar þá sjáum við um að hefja markaðssókn. Við sjáum um að hringja í valda innkaupaaðila,og bjóða þeim í heimsókn til að skoða vörurnar, eins höldum við kynningar, þar sem hópum er boðið. Við tökum síðan við pöntunum og afgreiðum til viðskiptavinarins. Það sem fylgir markaðssetningu í Kína er m.a. að þýða allan texta á Kínversku, sjá um vörumerkjavernd, sækja um innflutningsleyfi og setja upp Kínverska heimasíðu og social media síður. Mjög mikilvægt er að neytandinn í Kína geti séð vörurnar í verslunum ef varan er til sölu á þekktum sölusíðum í Kína. Því verður að tryggja að varan sé komin í verslanir áður en það er gert.

 

Við beittum þessari aðferð þegar við tókum að okkur að markaðssetja vörur fyrir Ítalska hönnuði, og hún gafst vel, sjá myndir hér að neðan af vörum þeirra (aðeins hluti af úrvali þeirra):

 

 

 

 

 

Eins höfum við leitað að sterkum dreifingaraðilum og komið viðskiptavinum í samband við þá, séð um alla samninga og aðstoðað viðskiptavininn á allan hátt að tengjast þeim.

 

Þóknun okkar  

 

Við tökum að okkur raunveruleikakönnun án mikils kostnaðar fyrir viðskiptavininn. Áður en við hefjum störf förum við fram á að viðskiptavinurinn tryggi vörumerkjavernd, kostnaður áætlaður um 1.500 Euro, við getum tekið það okkur fyrir viðskiptavininn.  Viðskiptavinurinn þarf svo að lána okkur prufur af vörunni og sjá um að senda hana til okkar í Shanghai. Ef niðurstaða sérfræðinga verður jákvæð, semjum við um framhaldið.

 

 

Tækifæri Íslenskra útflutningsaðila eru fjölmörg

 

 

Kína og Hong Kong - stærsti og mest vaxandi neytanda markaður í heimi - hefur þú efni á að sleppa honum?

 

Kína er fjölmennasta ríki heims með um 1,4 milljarða íbúa. Efnahagslegur vöxtur síðustu árin hefur verið mikill og um 400 milljónir Kínverja teljast til millistéttar. Það er um það bil öll millistétt Evrópu og USA til samans. Kínverska millistéttin eyðir miklum peningum í neyslu og er henni spáð hröðum vexti á komandi árum, eða um 10% á ári.  Millistéttinni fjölgar því sem nemur íbúafjölda Norðurlandanna á ári. Millistéttin leitar meira og meira í vestrænar vörur. Þar á meðal vestræn vörumerki. Kínverjar kaupa mikið á netverslunum jafnt sem í venjulegum verslunum. Því er Kína líklega mest spennandi markaður heimsins í dag. Tækifærin eru því nær óendanleg fyrir þá sem hafa getu til að grípa þau.

 

Íslendingar hafa fengið tollfrjálsan aðgang að þessum risavaxna markaði. ­Fríverslunarsamningurinn sem tók gildi 1. júlí 2014 kveður á um niðurfellingu tolla á öllum helstu útflutnings­afurðum Íslendinga, í flestum tilvikum frá upphafsdegi gildistöku samningsins.   

 

Hvetjum við alla sem stunda útflutning eða sjá tækifæri í að hefja útflutning að skoða þennan risastóra markað. Hann er ekki eins erfiður eins og ætla mætti ef rétt er staðið að markaðssetningu.

 

Helstu tækifæri

 

  • Aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi framleiðslukostnaður í Kína hefur skapað aukna þörf fyrir sjálfvirkni í verksmiðjum þar í landi. Því mun eftirspurn eftir tæknibúnaði aukast á komandi árum.

  • Talið er að aukning eftirspurnar eftir mjólkurafurðum muni nema 25% á ári. Því munu innfluttar mjólkurafurðir eiga all góða möguleika á þessum markaði. Árið 2013 var verð mjólkurafurða í Kína um 60% yfir heimsmarkaðsverði að jafnaði.

  • Þörfin fyrir umhverfisvæna orku mun aukast þar á meðal uppbygging vatnsaflsvirkjana, sólarorku, vindorku, o.s.frv. Eftirspurn eftir orkusparandi tækni mun aukast, eins eftir farartækjum sem nota lífræna orku eða ganga fyrir rafmagni. Eftirspurn eftir endurvinnslutækni mun aukast.  Eftirspurn eftir lífrænum vörum mun aukast, eins og lyf, lækningar, landbúnaður.

  • Vegna mikillar uppbyggingar í sveitum landsins mun þörfin fyrir uppbyggingu flutninga aukast verulega. Þar á meðal flutningur orku, vöru, fólks, þjónustu, o.s.frv.

  • Kínverjar vilja byggja upp frumkvöðlasamfélag og minnka áhersluna á framleiðslusamfélag. Því mun þörfin fyrir nýsköpunarfyrirtæki aukast, þar á meðal smærri og meðalstór fyrirtæki. Kínverjar munu veita mikla styrki á komandi árum til að byggja upp slík fyrirtæki.

  • Kínverjar hafa áhuga á að byggja upp bankaþjónustu og þar eru mikil tækifæri.

  • Mikil fjölgun eldri borgara í Kína krefst bætts skipulags þjónustu við eldri borgara. Þörfin fyrir nútíma lyf og tæki fyrir heilbrigðisþjónustu mun aukast mikið á komandi árum. Talið er að Kínverjar muni á komandi árum opna markað sinn fyrir fjárfestingum í einkareknum heilbrigðisfyrirtækjum.

  • Eftirspurn eftir nýjustu tækni í fjarskiptum, tölvubúnaði, sjónvarpstækni, o.s.frv. mun aukast.

  • Eftirspurn eftir vestrænum lúxusvarningi er að vaxa í borgum landsins. Helsta ástæðan sem gefin er fyrir kaupum á t.d. snyrtivörum, er að þetta eru „alþjóðlegar vörur.“ Þó er aðdráttarafl alþjóðlegar vörumerkja að minnka og aðrir þættir, eins og gæði, eru nú mikilvægari viðskiptavininum. Mikilvægt er að vera með góðar og aðgengilegar upplýsingar um vöruna á völdum miðlum í Kína.

  • Kínverjar munu verða stærstu notendur E-commerece á komandi árum.

 

 

bottom of page